Black and white portrait of a smiling male healthcare professional wearing medical scrubs with a Figs logo pocket.

MUNNLYFLÆKNINGAR

Oft er talað um að munnurinn sé gluggi inn í líkamann þar sem unnt er að greina birtingarmyndir ýmissa sjúkdóma án mikilla inngripa.

Það er því mikilvægt að horfa á munninn í stærra samhengi - sem hluta af líkamanum. Lyflækningar munns er sú sérgrein sem lítur að greiningu og meðferð sjúkdóma sem hafa birtingarmynd í munni eða kjálkum. Margir sjúkdómar eða meðferðir þeirra geta einnig haft áhrif á tannlækningar og öfugt. Lyflækningar munns snúast um þetta samspil tanna, munnhols og líkama.

Vandamál sem við greinum og/eða meðhöndlum:

  • Slímhúðarsjúkdómar eins og munnangur, lichen planus, pemphigoid, ofl.

  • Sýkingar í munni af völdum baktería, veira eða sveppa.

  • Hvers konar forstigsbreytingar eða illkynja breytingar í munni og kjálkum.

  • Munnvatnskirtilvandamál eins og lyfjatengdur munnþurrkur, Sjögren sjúkdómur, munnþurrkur tengdur geislameðferðum, kirtilæxli, mucocele, ofl.

  • Ýmis skyntaugavandamál eins og munnsviði, bragðskynsbreytingar, vangahvot, draugaverkir, ofl.

  • Önnur verkjavandamál eins og vöðvaverkir kjálka, liðverkir og höfuðverkir.

  • Vandamál tengd krabbameinsmeðferðum eins og mucositis, hýsilhöfnunarsjúkdómur, beindrep í kjálkum, og aðrar aukaverkanir tengdar notkun lyfja- og geislameðferða við krabbameinum.

  • Kæfisvefn og tengd vandamál.

PANTA TÍMA