Frí afhending á næsta afhendingarstað Dropp þegar þú verslar fyrir 10.000 kr eða meira

BioGaia: mest rannsakaði góðgerill í heimi**

Prodentis góðgerlar fyrir munnheilsu

Prodentis góðgerlar fyrir munnheilsu

BioGaia hefur í yfir 30 ár rannsakað L. reuteri góðgerla og þróað sérstaka blöndu sem styður við heilbrigði munnsins. Prodentis® er einn mest rannsakaði góðgerill heims fyrir munnheilsu, með yfir 70 klínískar rannsóknir og meira en 15 yfirlitsgreinar (systematic reviews) sem styðja virkni hans.

BioGaia Prodentis
Daglegur stuðningur við heilbrigt tannhold, tennur og ferskari andardrátt

Daglegur stuðningur við heilbrigt tannhold, tennur og ferskari andardrátt

BioGaia Prodentis® sameinar tvo einkaleyfisvarða L. reuteri Prodentis® góðgerilsstofna og sink, sem vinnur gegn rokgjörnum brennisteinssamböndum (VSC) – einni helstu orsök slæms andardráttar.

BioGaia Prodentis Fresh Breath

oraNurse tannbursti

oraNurse 3D Triple Head er sérhannaður tannbursti með þremur burstahausum sem umlykja tennurnar og hreinsar alla fleti samtímis.

Tannburstinn hentar sérstaklega einstaklingum með aukið kúgunarviðbragð, einhverfu eða sérþarfir sem geta átt erfitt með hefðbundna tannburstun eða þola illa að hafa aðskotahluti í munni.

Skoða betur

XyliMelts eru hannaðar fyrir fólk sem glímir við munnþurrk

XyliMelts eru litlar töflur sem loða við tennur, góm eða kinn og gefa frá sér xylitol (náttúrulega sykru) sem örvar munnvatnsflæði, kalsíum sem endurkalkar tennur og bíkarbónat sem hlutleysir sýrur í munninum.

Munnþurrkur á nóttunni getur verið sérstaklega óþægilegur þar sem sumir vakna reglulega yfir nóttina til að bleyta munninn. Þetta hefur mjög slæm áhrif á svefngæði sem getur haft víðtæk áhrif á almenna heilsu einstaklinga. XyliMelts eru hannaðar til að halda rakastigi stöðugu í svefni án þess að trufla þig. Þær loða mjúklega við góm og leysast upp hægt og örugglega á meðan þú sefur. Þetta hjálpar bæði til við að viðhalda svefngæðum en einnig til að forðast þynningu á slímhúð og varna gegn tannskemmdum.

XyliMelts

Er kæfisvefnsbúnaðurinn þinn hreinn?

Regluleg þrif á kæfisvefnsbúnaði svo sem slöngum og grímum eru mikilvæg til að tryggja gott hreinlæti, betri loftgæði og árangursríka meðferð.

Heitt og rakt loft í CPAP grímum og slöngum gera þær að kjöraðstæðum fyrir bakteríur og óhreinindi. Þessi óhreinindi geta valdið ertingu í öndunarfærum og á húð.

SomnoSept

Hvað getur orsakað munnþurrk?

Munnþurrkur verður þegar munnvatnskirtlar framleiða ekki nægilegt magn munnvatns. Munnvatn gegnir mikilvægu hlutverki við að halda munninum heilbrigðum, vernda tennur, auðvelda tyggingu og kyngingu og draga úr hættu á sýkingum og tannskemmdum.

Munnþurrkur getur orsakast af ýmsum þáttum. Algengasta orsökin eru lyf, en ótal lyf geta haft munnþurrk sem aukaverkun, þar á meðal þunglyndislyf, ofnæmislyf, blóðþrýstingslyf og sum verkjalyf. Einnig getur vökvaskortur, öndun um munninn, reykingar, mikil neysla koffíns eða áfengis og streita valdið tímabundnum eða langvarandi munnþurrki.

Í sumum tilfellum er munnþurrkur einkenni undirliggjandi sjúkdóms, svo sem Sjögren-heilkenni, sykursýki eða annarra sjúkdóma sem hafa áhrif á munnvatnskirtla. Geislameðferð á höfuð- og hálssvæði getur einnig skaðað munnvatnskirtla og leitt til viðvarandi munnþurrks.

Ef munnþurrkur er viðvarandi eða veldur miklum óþægindum er mikilvægt að leita til tannlæknis eða læknis. Með því að greina orsökina er hægt að finna viðeigandi meðferð og draga úr einkennum, sem stuðlar að betri munnheilsu og auknum lífsgæðum.

XyliMelts
  • Munnangur

    Munnangur er eitt algengasta sáramyndandi vandamálið í munnslímhúð. Stærstur hluti tilfella valda einungis vægum...

    Lesa meira 
  • Munnþurrkur

    Munnþurrkur er oft á tíðum þjakandi ástand sem getur valdið mikilli skerðingu á lífsgæðum og hefur slæm áhrif á tannheilsu einstaklinga...

    Lesa meira 
  • Munnsviði

    Munnóeirð er góðkynja ástand sem venjulega birtist sem munnsviði án þess að nokkrar sjáanlegar breytingar séu til staðar í munnslímhúð...

    Lesa meira