Munnsviði

MUNNSVIÐI (BURNING MOUTH SYNDROME)

Munnóeirð er góðkynja ástand sem venjulega birtist sem munnsviði án þess að nokkrar sjáanlegar breytingar séu til staðar í munnslímhúð. Munnóeirð á sér stað á einhverjum tímapunkti í um 1% einstaklinga en konur eru sjö sinnum líklegri til að greinast með þennan sjúkdóm. Meirihluti þeirra kvenna sem greinast eru um eða eftir tíðahvörf en karlar og yngri konur geta þó einnig greinst með munnóeirð.

Hjá flestum er bruninn staðsettur á tungubroddi, hliðum og efri hluta tungu, framan til á harða góm, og/eða innan á vörum, þó að einkennni geti átt sér stað hvar sem er í munni. Sjúklingar lýsa þessu ástandi oft eins og þeir hafi brennt sig á heitum mat. Að auki geta verið ýmsar aðrar brenglanir á skynjun í munnholinu t.d. bólgutilfinning í tungu eða hálsi og/eða súrt, beiskt, eða málmkennt bragð. Munnþurrkstilfinning getur líka verið til staðar jafnvel þó munnvatnsflæðið sé algjörlega eðlilegt. Þótt svo að tannlæknismeðferð (s.s. fyllingar, rótfyllingar og tannúrdrættir) valdi ekki munnóeirð þá tilkynna sjúklingar oft að einkenni hafi byrjað eftir slíka meðferð. Í flestum tilfellum byrja einkennin þó smá saman án orsakaþáttar