Munnangur
Munnangur er eitt algengasta sáramyndandi vandamálið í munnslímhúð. Stærstur hluti tilfella valda einungis vægum til miðlungs óþægindum á nokkurra mánaða fresti. Ákveðinn hluti tilfella getur hins vegar valdið verulegri skerðingu á lífsgæðum þar sem jafnvel eru mörg sársaukafull sár til staðar og ný sár taka alltaf við af gömlum. Yfirgnæfandi hluti tilfella er vegna arfgengra breytileika í ónæmiskerfi munnslímhúðar en sum tilfelli geta verið vegna annara undirliggjandi orsaka t.d. lyfjanotkunar, ofnæmis, vítamínskorts eða kerfislægra sjúkdóma.
Að útiloka undirliggjandi orsakir getur því verið mikilvægt þegar um verri tilfelli er að ræða svo vandamálið geti verið meðhöndlað á viðeigandi máta.