Uppgvötaðu BioGaia
Daglegur stuðningur við vellíðan
BioGaia býður upp á góðgerla sem eru þróaðir fyrir mismunandi þarfir líkamans og auðvelt er að gera að hluta af daglegri rútínu. Prodentis® er sérstaklega þróað til að styðja við heilbrigt jafnvægi í munnholinu og góða munnheilsu, á meðan Protectis® Kids Plus er ætlað börnum og styður við heilbrigða meltingu og vellíðan frá degi til dags. Með BioGaia er einfalt að bæta góðum bakteríum inn í daglegt líf allrar fjölskyldunnar.
L.reuteri Prodentis®
BioGaia Prodentis® Fresh Breath sameinar tvo einkaleyfisvarða L. reuteri Prodentis® góðgerilsstofna ásamt sinki, sem vinnur gegn lyktarmyndandi brennisteinssamböndum í munni – einni helstu orsök slæms andardráttar.
Gæði & rannsóknir
BioGaia® Protectis® Plus BABY er sérstaklega þróað fyrir ungbörn með magakveisu, óværan maga og ójafnvægi í meltingu.
Yfir 30 ára vísindaleg þekking liggur að baki BioGaia®. L. reuteri Protectis® hefur verið rannsakaður í fjölda klínískra rannsókna hjá ungbörnum og börnum. Protectis® BABY Plus sameinar vel rannsakaðan góðgerlastofn, vandaða framleiðslu og LongevityGuard® tækni sem hjálpar til við að tryggja stöðugleika vörunnar án kælingar.
Auðveld rútína
Af hverju að velja þessa góðgerla?
✓ Eina góðgerlavörumerkið með LongevityGuard® – engin kæling nauðsynleg
✓ Auðveld í notkun – mjúk túpa og aðeins 5 dropar einu sinni á dag
✓ Hentar bæði börnum á brjósti og börnum sem fá þurrmjólk
✓ Inniheldur 10 µg af D-vítamíni (ráðlagður dagskammtur)
✓ Byggt á yfir 30 ára vísindarannsóknum og trausti kynslóða foreldra
BioGaia® – Vísindi og rannsóknir í yfir 35 ár
BioGaia er sænskt fyrirtæki sem var stofnað árið 1990 og hefur síðan þá verið í fremstu röð á heimsvísu í rannsóknum og þróun góðgerla. Frá upphafi hefur fyrirtækið lagt ríka áherslu á vísindalega þekkingu, gæði og nýsköpun með það að markmiði að þróa vörur sem styðja við heilsu og vellíðan fólks á öllum æviskeiðum.
Að baki vörum BioGaia liggja yfir 200.000 klukkustundir af rannsóknum á góðgerlum. Fyrirtækið sérhæfir sig í rannsóknum á Limosilactobacillus reuteri (L. reuteri), góðgerlategund sem er meðal þeirra mest rannsökuðu í heiminum. Niðurstöður klínískra rannsókna á góðgerlastofnum BioGaia hafa verið birtar í yfir 200 vísindagreinum í alþjóðlegum vísindatímaritum.
BioGaia byggir vöruþróun sína á þeirri staðreynd að ekki eru allir góðgerlar eins. Mismunandi bakteríustofnar hafa ólíka eiginleika og því skiptir máli hvaða stofnar eru notaðir, hvernig þeir hafa verið rannsakaðir og hvaða áhrif þeirra hafa verið staðfest með vísindalegum rannsóknum. Þessi þekking er grunnurinn að þróun góðgerlavara BioGaia.
Í dag eru vörur BioGaia seldar í yfir 100 löndum um allan heim. Með áratugalangri reynslu, umfangsmiklum rannsóknum og stöðugri vöruþróun hefur fyrirtækið skipað sér sess sem eitt af leiðandi vörumerkjum heims á sviði góðgerla.