Sár í munni

Meðhöndlun á sári í munni er frábrugðin sári á húð að því leyti að ekki er hægt að búa um það með hefðbundnum sáraumbúðum. Í flestum tilvikum er lögð grisja yfir sárið sem sjúklingur er beðinn um að bíta á til að fá þrýsting á sárið sem hjálpar til við að stöðva bæðingu. Til að stuðla að eðlilegri græðslu er ráðlagt að halda kyrru fyrir og hvíla sig samdægurs. Gott getur verið að fara heim og leggja sig. Þá ber að gæta þess að hafa hátt undir höfði. Mikilvægt er að forðast að eiga við sárið þ.e. ekki sjúga eða sleikja sárið né eiga við það með fingrum eða öðrum verkfærum. Það getur valdið því að blóðköggul í sári sem er forsenda góðrar græðslu getur losnað og leitt til hægari græðslu.